Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte

Apply Now ↗

About this role

Company Description

Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 460.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu þar af eru 360 á Íslandi.

 

Job Description

Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á persónuvernd og upplýsingaöryggi til að ganga til liðs við vaxandi teymi sérfræðinga okkar.  

Við veitum heildstæða ráðgjöf á sviði persónuverndar með áherslu á uppbyggingu og áhættustýringu persónuverndar og innleiðingu verklags og öryggisráðstafana sem styðja við örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga.  

Verkefnin eru fjölbreytt og fela meðal annars í sér ráðgjöf, greiningar, úttektir og innleiðingu umbóta hjá fyrirtækjum og opinberum aðilum. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, er tilbúinn að bretta upp ermar og taka þátt í að styðja viðskiptavini við draga úr áhættu við vinnslu persónuupplýsinga og uppfylla kröfur laga og reglna á sviði persónuverndar. 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

Helstu verkefni felast í alhliða ráðgjöf og áhættustýringu á sviði persónuverndar, greiningu á fylgni við lög og reglur og þróun verklags sem styður við örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga, svo sem:  

  • Veita fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða ráðgjöf á sviði persónuverndar 
  • Meta, greina og skjalfesta ferla, verklag og áhættur tengdar vinnslu persónuupplýsinga 
  • Framkvæma gloppugreiningar, úttektir og meta fylgni við lög, reglur og staðla á sviði persónuverndar 
  • Veita ráðgjöf um túlkun á löggjöf, reglum, stöðlum og tilmælum og úrlausn álitaefna  
  • Vinna náið með viðskiptavinum og veita þeim ráðgjöf og stuðning í fjölbreyttum verkefnum á sviði persónuverndar 
  • Sinna verkefnum tengdum útvistuðu hlutverki persónuverndarfulltrúa fyrir viðskiptavini Deloitte 
  • Vera í samskiptum við persónuverndaryfirvöld og aðstoða viðskiptavini í tengslum við kvartanir, fyrirspurnir eða úttektir Persónuverndar 
  • Ráðleggja viðskiptavinum um viðeigandi viðbrögð við öryggisbrestum og aðstoða við úrlausn og eftirfylgni þeirra 
  • Aðstoða við úttektir innri endurskoðunar hjá viðskiptavinum Deloitte á fylgni við lög og reglur, m.a. á sviði persónuverndar- og peningaþvættislaga 

Qualifications

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. lögfræði eða önnur viðeigandi menntun/reynsla  
  • Þekking á persónuverndarlögum og lagaframkvæmd á því sviði   
  • Lausnamiðuð hugsun, sjálfstæði í starfi og geta til að halda mörgum boltum á lofti í einu  
  • Góð greiningarhæfni 
  • Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu  
  • Fagmennska, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð 
  • Hæfni í að setja fram skýran, hnitmiðaðan og faglegan texta og miðla upplýsingum á skiljanlegan hátt 
  • Skilningur og áhugi á upplýsingaöryggi, netöryggi og regluverki á því sviði er kostur  
  • Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu og skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini 
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði. 

Additional Information

Um teymið 

Teymið samanstendur af reynslumiklum sérfræðingum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við vinnum saman sem ein heild og eigum í góðu samstarfi við  aðra sérfræðinga Deloitte, bæði innanlands og erlendis.      

Starfsþróun þín 

Við trúum því að það er ávallt rými til að læra. Það kann enginn allt frá fyrsta degi. Þú færð viðeigandi þjálfun og munt vaxa með teymunum okkar. Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi viljum styðja við þinn vöxt með símenntunartækifærum. 

 

Að auki bjóðum við upp á:  

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat 
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf 
  • Góðan aðbúnað í höfuðstöðvum okkar á Dalvegi 
  • Styrki til nýbakaðra foreldra 
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum 
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahóp, fótbolti í hádeginu 

Við hlökkum til að fá umsóknina þína.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurður Már Eggertsson (smeggertsson@deloitte.is) og Helen Breiðfjörð  (hbreidfjord@deloitte.is). 

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is, til og með 11. júní 2026 

 

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. 

Frequently Asked Questions

Is the salary disclosed for the Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte position at deloittenordic?
The salary for this Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte role at deloittenordic is not publicly listed. Click "Apply Now" to learn more about the compensation package on their official careers page.
Where is the Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte position at deloittenordic located?
This Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte role at deloittenordic is based in Kópavogsbær, Kópavogur, Kópavogur, Kópavogsbær, Iceland, is. The position is listed as on-site or hybrid. Check the full job description or apply directly to confirm the work arrangement.
Is the Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte role at deloittenordic full-time or part-time?
This is listed as a Full time position. It is posted as a Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte role at deloittenordic.
How do I apply for the Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte position at deloittenordic?
Click the "Apply Now" button on this page. You will be redirected to deloittenordic's official application portal hosted on smartrecruiters where you can submit your application directly.
When was the Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte job at deloittenordic posted?
This Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte position at deloittenordic was posted on Jun 2, 2026. Apply as soon as possible — early applications are often reviewed first.
Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte
deloittenordic
Apply for this role ↗

You'll be redirected to deloittenordic's official application page on SmartRecruiters.