Viðskiptastjóri

Apply Now ↗
📍 Hybrid📍 Kópavogur, Reykjavik, IcelandFull Time

About this role

Ert þú að ljúka námi eða nýlega komin/n inn á vinnumarkað með brennandi áhuga á sölu og markaðsmálum? Líkar þér vel við að vera í samskiptum við fólk, ert hugmyndaríkur/hugmyndarík og vilt vinna þar sem þitt framlag skiptir máli? Þá viljum við heyra í þér.

 
Meniga leitar að jákvæðum og drífandi Viðskiptastjóra sem tekur virkan þátt í samskiptum við samstarfsfyrirtæki í tengslum við fríðindakerfi og Markaðsvakt Meniga, þjónustar notendur Meniga.is og tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum hér á landi. Tilvalið fyrir einstakling sem vill vaxa í starfi og fá traust til að bera ábyrgð á eigin verkefnum.

Hvað felst í starfinu?

  • Sala og ráðgjöf til íslenskra fyrirtækja — allt frá litlum sérverslunum til stærstu fyrirtækja landsins
  • Uppbygging og umsjón viðskiptatengsla
  • Þátttaka í þróun markaðsgreininga og túlkun á gögnum
  • Aðstoð við hugmyndavinnu og undirbúning kynningarefnis
  • Samskipti og þjónusta við notendur Meniga samfélagsins


Hverju erum við að leita að?

  • Háskólanám sem nýtist í starfi
  • Reynsla af sölu- og/eða markaðsstarfi er kostur
  • Þekking á íslenskum einstaklingsmarkaði (B2C) er kostur
  • Áhugi á markaðsgreiningum og gögnum
  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og jákvæðni
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku


Hvað bjóðum við upp á?

  • Líflegan og skemmtilegan vinnustað
  • Alþjóðlegt og tæknidrifið starfsumhverfi
  • Sveigjanlegan vinnutíma
  • Frábært mötuneyti
  • Íþróttastyrk
  • Farsímastyrk
  • Áskrift að síma og interneti
  • Tækifæri til að byggja upp öflugt tengslanet í íslensku atvinnulífi


Um er að ræða fullt stöðugildi á skrifstofu Meniga í Turninum í Kópavogi. Meniga er gagnadrifið fjártæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í heimilisbókhaldslausnum og persónumiðuðum, stafrænum vörum fyrir banka. Meniga er einnig með skrifstofur í London og Varsjá og hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíkan bakgrunn. Viðskiptastjóri starfar í fámennu en samhentu og öflugu teymi þar sem áhersla er lögð á jákvæðni og lausnamiðað hugarfar.


Umsóknarfrestur er til og með 10. júní. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Spurningar og umsóknir sendist á sonja.juliusdottir@meniga.com

Frequently Asked Questions

Is the salary disclosed for the Viðskiptastjóri position at meniga?
The salary for this Viðskiptastjóri role at meniga is not publicly listed. Click "Apply Now" to learn more about the compensation package on their official careers page.
Where is the Viðskiptastjóri position at meniga located?
This Viðskiptastjóri role at meniga is based in Hybrid, Kópavogur, Reykjavik, Iceland. The position is listed as on-site or hybrid. Check the full job description or apply directly to confirm the work arrangement.
Is the Viðskiptastjóri role at meniga full-time or part-time?
This is listed as a Full Time position. It is posted as a Viðskiptastjóri role at meniga.
How do I apply for the Viðskiptastjóri position at meniga?
Click the "Apply Now" button on this page. You will be redirected to meniga's official application portal hosted on bamboohr where you can submit your application directly.
When was the Viðskiptastjóri job at meniga posted?
This Viðskiptastjóri position at meniga was posted on May 28, 2026. Apply as soon as possible — early applications are often reviewed first.
Viðskiptastjóri
meniga
Apply for this role ↗

You'll be redirected to meniga's official application page on bamboohr.